Bærinn minn - Akureyri
Bærinn minn
Bær með svo stórt hjarta að það dugar ekkert minna en tvö póstnúmer! Pollurinn, kirkjutröppurnar, rúntur niður gilið, göngutúr í Lystigarðinum og ís í bongó blíðu – það gerist ekki mikið betra!
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.
Venjulega tilbúið á 24 klst
Bærinn minn - Akureyri
Stærð: 21×30 cm
-
Faxafen 10, 2.hæð
Afhending í boði, venjulega tilbúið á 24 klst
Faxafen 10, 2.hæð
+3548680626
108 Reykjavík
Ísland

