Skál á fæti – gul steináferð
Steypt skál á fæti
Falleg handgerð skál á fæti, gul með mjúkri steináferð. Einföld og tímalaus skál. Hækkunin gefur henni létt og fágað útlit.
Skálin hentar vel undir kertasand, smáhluti, skartgripi eða sem skrautmunur á borði eða á hillu þar sem hún bætir við hlýju og stílhreinu yfirbragði.
Helstu eiginleikar:
- Handgerð vara
- Efni: Steypa og spreyáferð
- Hæð: 5,5cm
- Þvermál: 12cm
- Skál á fæti með mjúkri steináferð
Umhirða: Strjúkið af skálinni með rökum klút, ekki setja hana undir vatn
Athugið: Þar sem um handgerða vöru er að ræða geta stærðir og útlit verið örlítið breytilegt.
Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.
Ath. Vantar meira magn - eða ertu með séróskir?
Sendu okkur línu á hngallery@hngallery.is eða spjallaðu við okkur í skilaboðunum!



